Today is the first day of the rest of my life
31.07.2006 23:46:19 / davidthb

Síðasta vikan (held ég)

Vá hvað sumarið hefur flogið, ef sumar má kalla. Bara 4 vinnudagar eftir á þessu sumri :!:
Svo tekur próflestur og e-ð álíka skemmtilegt við :$
Mér var reyndar boðið að halda áfram í verkefninu í vetur og taka þá bara 3 kúrsa í stað 5. Ég er ennþá að melta það tilboð, hef ekkert á móti smá vasapening :D
Þá kannski getur maður skellt sér --> hingað <-- vá hvað það væri sweeeeeeet :haha: Einhver game??
En já, fór á Sigur Rós í öxnadalnum á föstudaginn, ég var driver sem var ekki það þægilegasta því öxlin var f.u.b.a.r. 8| Magnaðir tónleikar engu að síður, hefðu samt mátt taka Starálf og glósóla..
Versló um næstu helgi. Spurning hvað maður eigi að gera af sér þetta árið. Fór til ak í fyrra, það var reyndar í fyrsta skipti sem ég fer eitthvað um verslo og gisti... Ekki mikill útihátíðarmaður held ég.
Einn kostur við að fara á ak í ár er að ásbyrgi er ekki það langt frá og Sigur Rós er með tónleika þar, eða svo segir gatan :haha: Kannski þeir taki við óskalögum og taki lögin sem ég vill heyra :) Rúmlega 70% vilja sja mig í tölvunni um versló, kannski maður geri það bara ??
Anywayssss, hvað ætlar þú að gera ?
ble



» 2 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 16:28:53 / davidthb

Hjól

Hvar er góða veðrið sem veðurfræðingarnir tala um ??
Það er sko aldeilis ekki hérna í sveitinni :( Mig minnir að það hafi verið gott á mánudaginn en eftir það skýjað/þoka og leiðindi 8|

Ég gafst endanlega upp á gamla hjóladraslinu og keypti mér nýtt hjól í kaupfélaginu í gær. Munar ótrúlega miklu að þurfa ekki að vera með skrall og haus nr eitthvað í rassvasanum til að festa pedalan á, á 10 metra fresti :haha:
Ég keypti auðvitað dýrasta hjólið sem í boði var, 29K og svo 25% afslattur af því. Nokkuð gott held ég bara.

Er ekki bannað að vera veikur á sumrin ?? Maginn og hausinn eru í einhverju ólagi þessa dagana.. Eykst bara með hverjum deginum...
bleh, sorry á "beilinu" þið sem ég er að "beila" á :cry: Bæti fyrir síðar :haha:
Anyways, farinn að gera eitthvað
bæjó

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 16:39:57 / davidthb

Mánudagur

Vá hvað sumarið er fljótt að líða.... Enn ein vikan að byrja. Bara 4 vinnuvikur eftir hjá mér því ég hætti um versló..!
Ekki halda að ég geti slappað af, því þá tekur við lærdómur fyrir próf :$
Tvö æðisleg sumarpróf, stærðfræðigreining 2B og e-h sull.
Þar sem pabbi er kominn í frí frá einni vinnunni og byrjaður í þeirri næstu þá neyðist ég til að labba eða hjóla í vinnuna. Ég kaus að hjóla, ágætis hreyfing það. Þetta hjól er í svipuðu ásigkomulagi og bleika kerlingarhjólið sem ónefndur aðili stal í rvk :)
Ég var semsagt í sakleysi mínu að hjóla í vinnuna í morgun þegar annar pedalinn datt af...! Ekki bara pedalinn heldur armurinn sem hann er fastur við..! HA??? Sem betur fer er brekka niðurávið alla leiðina í vinnuna svo þetta reddaðist :D

Loksins komið sumar hér fyrir norðan, sól og smá vindur. Ágætis tilbreyting frá ógeðis rigningunni og rokinu sem er búið að vera í allt sumar!!!
Ég sit úti á palli með fartölvuna í fanginu og reyni að næla mér í smá sól áður en hún hverfur á bakvið húsþakið. Fínt að vera búinn í vinnunni kl 16 því þá nær maður 1-2 klst af sól á bakvið hús :P

Bið að heilsa úr sólinni
blee

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 20:05:38 / davidthb

Þriðjudagur.

Já er ekki málið að rita nokkur orð ??

Svosem ekki neitt merkilegt að frétta af manni. Fór í útilegu um helgina, á Hallgeirsey á suðurlandinu flata. Rosa fjör þar og margt um manninn, háskólanemar sem og aðrir. Nenni ekki að fara nánar út í þá ferð 8)

Urg, hvað er málið með þetta rosa bil ef maður notar "enter"... :!:

Hvert er heimurinn að fara, sá fétt á mbl áðan um að David Hasselhoff sé að fara að gefa út rapp-plötu í samvinnu við Ice-T ??!?!? Hassel The Hoff ætlar hann að kalla sig. HAHA :haha:

En já, nenni ekki að hafa þetta lengra

blee

ps. takk fyrir helgina þið sem voruð á Eynni. 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun