Það er svo langt síðan ég tjáði mig hérna að ég man eiginlega
ekki hvað er búið að gerast síðan síðast.. 
Það helsta sem gerst hefur er auðvitað skíðaferðin til Akureyrar um
þarsíðustuhelgi. Ég "beilaði" á fillerýinu en ég brunaði frá
króknum norður á Ak á laugardagsmorgninum.
Fékk mér morgunmat á shellstöðinni þegar maður kemur inn í bæinn og
brunaði svo bara beint upp í fjall til krakkanna.
Maður var hálf smeikur fyrstu ferðirnar og fór því ekki upp með
"T-lyftunni" upp á topp en eftir nokkrar ferðir niður og marga
HARÐA skelli þá lét ég vaða og brunaði upp með mr T. Sé ekki eftir
því, því það var það skemmtilegasta, maður gat nefnilega rennt sér
lengst til hliðar þar sem mjög skemmtileg gil voru með tilheyrandi
hengjum og brúnum til að slasa sig á.
Ég afrekaði ýmislegt í fjallinu, t.d. náði ég að sviga í fyrsta
skipti
þetta er allt að koma, bráðum fer maður að svífa fram
af pöllum og hengjum eins og ekkert sé. Svo tókst mér að stökkva
óvart fram af brún, skella á smettið og slá mig í nefið í leiðinni
þannig að af hlaust þessi fíni blóðnasir.. mmm rauður snjór, næstum
jafn girnilegur og gulur 
Ekki get ég sagt að heilsufarið hafi verið gott eftir þetta,
maður tók svo marga skelli að ég er bara hissa á að hafa ekki
brotið neitt
Sunnudagurinn var áhugaverður, harðsperrur út
um allt, sérstaklega aftan á hægra læri/rasskinn og svo í
brjóstkassanum vinstramegin, á milli rifbeinana ??? Ha?
Hélt í fyrstu að ég væri rifbeinsbrotinn eða eitthvað álíka
spennandi en svo var ekki. Vissi ekki að maður gæti fengið svona
rosalega harðsperrur þar.
Ég hlakka til að komast upp í fjall aftur, get ekki beðið eftir
páskunum 
Næsti "stóri" viðburður er auðvitað árshátíð verkfræðinema á
Hótel Selfossi um þarnæstu helgi. Ætla ekki að
láta mig vanta þar, ræð heldur engu um það því maður fengi
ekki frið ef maður myndi "beila" á því. 
Ég auglýsti
eftir herbergisfélaga hérna fyrir ekki svo löngu og ég fékk bara
eitt tilboð, iss, það veit ekki á gott 
Fjáröflunin fyrir Bandaríkjaferðina gengur vel núna, blaðið
okkar er að gefa mjög vel af sér sem betur fer. Lítur allt út fyrir
að maður muni fá smá gjaldeyri sem skemmir sko alls ekki fyrir. Nú
er bara að finna eitthvað "fullkomið system" fyrir spilavítin og
koma "margmilljónaður" til baka 
Nú er ekki slæmt að vera með tvö Kreditkort, og þar af annað þeirra
gullkort með X >> 100.000 yfirdráttarheimild 
EEnnnnnnnn Jaaaá, held þau verði nú samt bara skilin eftir heima.

Jæja, held ég hafi ekkert meira "|>ó<|"-merkilegt að segja
í bili.
þar til næst
lifið heil
bæb