Er ekki kominn tími á nýja færslu hér, jú það held ég. Það yrði
samt önnur færslan í dag jeiiii.. Ástæða: því þetta er svo æðislegt
kerfi sem galdrar færslurnar í burtu þegar maður ýtir á staðfesta.
Þetta var hin fullkomna færsla..

Það var meira að segja
dæmisaga í endan um hvernig færslan ætti örugglega hvort eð er
eftir að hverfa og ég kom með skýringu á því afhverju ég gerði ekki
copy og paste...
Úff, já, byrja upp á nýtt. wheee.
Ætli ég byrji ekki eins og áðan með því að segja að það hafi ekki
mikið gerst hjá manni í jólafríinu. Eiginlega það eina sem ég gerði
fyrir norðan var að fara að sofa undir morgun og fara seint á fætur

ég hafði reyndar ágæta.., nei frábæra ástæðu til að vaka svona
lengi
Magnað samt hvað dagurinn verður að engu þegar maður er að skríða
framúr kringum 16 og 17 á daginn

Enda sást það best á því hve
duglegur ég var að gera allt það sem ég ætlaði að gera.
Ætlaði t.d. að setja glósurnar mínar í rafeindatækni 1 á "wiki"ið
okkar fyrir þá sem eru að fara í fagið í fyrsta skipti. Ætlaði líka
að halda áfram að fikta í "hinu blogginu" svo ég gæti nú sagt
skilið við þetta. Svo ætlaði ég að leika mér í maya og verða
snillingur í að "modela" 3d-model svo ég gæti fengið sumarstarf hjá
universal við 3d-modeling.. right..

Uhm.. hvað fleira ætlaði ég að gera en gerði ekki.. tók með mér
takkaskó en notaði þá ekkert.. tók líka með mér einstaka snilligáfu
mína í trivial pursuit en það var til einskis því ekkert var spilað

Skrítið jólafrí, en engu að síður eitt það besta til þessa
Bíóárið byrjaði vel hjá manni, er strax búinn að fara tvisvar í bíó

Fór á Eragon á þriðjudaginn, þó myndin hafi bara verið ágæt þá var
kvöldið í heild sinni frábært og gleymi ég því seint

Fór svo á Stranger than Fiction á föstudaginn og er þetta mynd með
snillingnum Will Ferrell. Alveg ótrúlegt hvað hann getur látið
venjulega hversdagslega hluti vera fyndna

t.d. það að bursta
tennur
Held að dagarnir framundan verði ekkert sérlega skemmtilegir af
einhverri ástæðu

Það eru reyndar nokkrar ástæður fyrir því sem ég ætla svosem ekki
að fara nánar út í..
Mig langar þó að nefna peningaútgjöld

Nýtt misseri þýðir nýjar bækur, eða amk í þeim fögum sem maður er
ekki að fara í, í annað skiptið

Svosem ágætt að losna við að
kaupa bækurnar en það er glatað að þurfa að sitja áfangana aftur..
Ég þarf að sitja tvo áfanga aftur..
Svo ákvað hleðslutækið á fartölvunni minni að skera sig á háls svo
ekki get ég notað fartölvuna sökum rafmagnsleysis..

Við erum
að tala um 7 þúsund fyrir nýtt tæki...!!

Svo þarf ég að kaupa nýtt kort í gymmið því mitt rann út núna um
áramótin, ég er mikið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara
aftur í Hí gymm eða finna mér nýjan stað til að brenna lýsi á..
veitiggi
Svoo þarf ég að borga 80k í flugmiða fyrir ferðina í vor, það borga
ég þó með glöðu geði

en ég vildi að ég væri að fara út á
morgun eins og sumir

í stað þess að vera að byrja í skólanum
aftur.
Svooo var ég að spá í að kíkja á útsölur og reyna að finna mér
einhver föt. Spurning að fá sér annað par af gallabuxum svo maður
eigi nú tvö

Fyrir þá sem ekki vita þá hef ég ekki verið sérlega
mikill gallabuxnamaður undanfarin ár(-atug)..
En jæja, spurning að enda þetta hérna og skokka niður og gá hvort
það sé ekki eitthvað til að snæða. Þessar tvær pönnukökur og
brauðsneið sem ég borðaði í hádeginu duga víst ekki allan daginn
Þangað til næst
bæjó